Fræðslugátt PREMIS
Í fræðslugátt Premis eru á annað þúsund stuttra kennslumyndbanda á ensku um einstök forrit í Office pakkanum, Office 365, og margt fleira. Með henni getur þú veitt þínum starfsmönnum tæki til að eflast í starfi með mjög litlum tilkostnaði.
Á forsíðu er einföld og öflug leit þar sem þú finnur það kennslumyndband sem þú þarft á að halda hverju sinni. Hægt er að úthluta fræðsluefni (mörgum myndböndum raðað saman) á ákveðna notendahópa og setja tímamörk á þann tíma sem notendur hafa til að fara í gegnum fræðsluefnið. Síðan geta stjórnendur fylgst með hvernig notendum gengur að fara í gegnum efnið.
Notendur vinna sér inn stig og ná áföngum eftir því sem þeir lengra komnir í fræðsluefninu. Aðrir notendur sjá hverjir eru að standa sig best og eru allir hvattir þannig til árangurs. Notendur geta einnig deilt áhugaverðum og hjálplegum myndböndum með vinnufélögum.
Stuttar spurningar
Á milli myndbanda koma stuttar prófspurningar öðru hverju til að tryggja að notendur séu með athyglina á efninu.
Þitt eigið efni
Þú getur hlaðið eigin efni í fræðslugáttina og nýtt hana þannig til að fræða starfsfólkið um að aðra hluti eins öryggismál eða aðra þjálfun sem er mikilvæg fyrir þinn rekstur.
Aðgengilegt efni
Hægt er að komast í Fræðslugáttina með ýmsum hætti. Til dæmis er hægt að birta flipa í Ribbon í Office forritunum þar sem notendur þurfa mest á því að halda.
Sífellt vaxandi grunnur
Fræðslugáttin er uppfærð reglulega með nýju efni, enda er Microsoft 365 í stanslausri þróun.
Microsoft 365 námskeið
Við hjá PREMIS höfum haldið vinsæl námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir varðandi innleiðingu, notkun og möguleika Microsoft 365. Hugbúnaðarlausnir Microsoft ná yfir mikið af frábærum hugbúnaði og verkfærum til að auðvelda dagleg störf.
Það getur verið erfitt að átta sig á því hvar maður á að byrja fyrir utan Outlook, Word og Excel. Hvenær á að nota Powerpoint og hvenær er betra að nota Publisher? Hvað er Sharepoint eiginlega og hvað er OneDrive? Ekki gleyma svo Teams eða Microsoft To-Do!
Premis býður upp á kynningar og fræðslu til að innleiða mikilvægustu atriðin sem Microsoft 365 notkun ætti að byggja á. Við sníðum hvert námskeið að því efni sem óskað er eftir að setja í fókus hverju sinni og best er að fylgja námskeiðunum eftir með Fræðslugátt PREMIS.
Microsoft Teams kennsla
Aldrei fyrr hefur skipt jafn miklu máli fyrir fyrirtæki að hafa samskiptaleiðir innan fyrirtækja hreinar og ekki kannski síst sveigjanlegar. Microsoft Teams hefur orðið leiðandi í hugbúnaði fyrir fyrirtæki til að halda utan um samskipti og skipulagningu innan vinnustaðarins.
Kostir Teams eru margvíslegir en ekki kannski síst er Teams öflugt í að sameina vinnustaði sem vinna á mörgum staðsetningum og jafnvel milli landa. Teams er líka miðlæg lausn til að halda utan um skjöl og vinnuferla ásamt því að nýtast sérstaklega vel í að mynda og halda utan um vinnuhópa.
Virkjaðu þína starfsmenn enn betur í notkun Teams með fræðslu og kennslu um Teams frá sérfræðingum PREMIS.
Öryggisþjálfun PREMIS
Með aukinni notkun tölva og sjálfvirkra ferla í starfsemi fyrirtækja hefur netglæpum fjölgað til muna. Í raun má segja að okkar hefðbundna sýn á glæpamann hafi breyst og glæpir að stórum hluta færst yfir á internetið. Öryggislekar og gagnatap getur einnig komið til af þekkingarleysi og andvaraleysi starfsmanna.
Öryggisþjálfun PREMIS er byggð upp á stuttum og hnitmiðuðum myndböndum sem notandi fær aðgang að á netinu. Myndböndin virka eins og stuttar auglýsingar sem minna á góða öryggishegðun og taka á öllum helstu öryggisþáttum sem starfsmenn þurfa að vera meðvitaður um. Við lok hvers myndbands koma nokkrar spurningar sem miða að því að tryggja að athygli notandans hafi verið á efni og inntaki myndbandsins.